Cibdol CBD fótakrem
Cibdol CBD fótakrem

Cibdol CBD fótakrem

Uppselt
4.590 kr
Með vsk.

Magn CBD: 190mg

Notkun: Þunnt lag á hreina húð

Spyrðu um vöru
Cibdol CBD fótakrem

Cibdol CBD fótakrem

Magn CBD: 190mg

Notkun: Þunnt lag á hreina húð

 


 

Fætur þínir taka hitann og þungann af öllu því sem þú gerir. Ekki láta þreytta fætur hindra þig í að lifa lífinu til fulls.

Enda þótt fæturnir séu hörkutól geta þeir orðið þreyttir og úr sér gengnir í orðsins fyllstu merkingu. Þá kunna þeir svo sannarlega að meta nærgætni og umhyggju. Þú getur létt þeim lífið töluvert með Cibdol CBD fótakreminu og þá erum við ekki bara að tala um þurra hæla eða þreytta ökkla heldur almenna líðan frá tám til læra.

Í krafti CBD virkninnar, nærveru morgunfrúarinnar, framlags Aloe Vera, E vítamíns og olíu frá Camphor trénu fer Cibdol fótakremið nálægt því að lyfta Grettistaki í vellíðan fótanna. Kremið er í senn rakagefandi og endurnærandi. Tilvalið til notkunar hvenær sem tækifæri er til. Best er að nudda litlu magni af kreminu á milli tánna, á ilina, ristina, hælana, ökklana, hásinina og upp með sköflungi, kálfum upp á hné og læri. Svo er um að gera að setja tærnar upp í loft og kasta mæðinni ef tími er til!

 

Verkferlar, notkun og geymsla.

Cibdol CBD (Cannabidiol) er náttúruleg afurð úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis sativa jurt) og öll önnur innihaldsefni eru sömuleiðis 100% náttúruleg. Allir verkferlar að baki svissnesku Cibdol CBD vörunum eru GMP gæðavottaðir, jafnt í rannsóknarstofum sem framleiðslu. Allar Cibdol vörur eru 100% lífrænar, vegan og dýravænar. Þær eru án erfðabreytinga, tilbúinna lyktarefna, litarefna, eiturefna, rotvarnarefna o.s.frv. Cibdol CBD fótakremið er gott að bera í þunnu lagi á hreina húð. Best er að geyma kremið fjarri mikilli birtu og hita.

1981
7640178663077
No reviews

Viðskiptavinir sem keyptu þessa vörur keyptu einnig:

Product added to wishlist
Product added to compare.

Þessi vefur notar vafrakökur

Við notum vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun

og virkni vefsíðunnar, til að geta notað lausnir frá samfélagsmiðlum

og til að bæta efni og birta viðeigandi markaðsefni.