- Fullorðnir
-
Börn
-
Skólavörur
Við mælum meðFingramálning 6 litir3.290 kr
-
Partý
Við mælum meðPrisoner - drykkjuleikur - EN útgáfa5.990 kr
-
Ísland
Við mælum meðKarla Bolur - Ísafjörður3.990 kr
- Þín hönnun
- Tilboð
- Ljósmyndaprentun
- Vörumerki
Lukka og hugmyndavélin: Hætta í háloftunum
Eva Rún Þorgeirsdóttir
Lukka og Jónsi eru í fríi með foreldrum sínum og ætla að njóta sveitakyrrðarinnar hjá hinum virta fornleifafræðingi, prófessor Gulldal. Það er stutt síðan þau lentu í háskanum í Fiskey og tilgangur ferðarinnar er fyrst og fremst að slaka á og halda sig fjarri vandræðum.
En skjótt skipast veður í lofti í lífi Lukku. Áður en hún veit af hafa systkinin dregist inn í stórhættulega atburðarrás og nú reynir heldur betur á hugrekkið. Getur verið að öll vandræðin sem systkinin hafa lent í út af hugmyndavélinni tengist með einhverjum hætti?
Lukka og hugmyndavélin: Hætta í háloftunum er þriðja og síðasta bókin í bókaflokknum um snjöllu uppfinningastelpuna Lukku.
Höfundur Lukku og hugmyndavélarinnar er Eva Rún Þorgeirsdóttir og myndir bókarinnar teiknar Logi Jes Kristjánsson.